Já ég fékk e-mail frá Fjólu
um daginn þar sem hún sagði mér að það væru einhverjar sögur á
kreiki um það að ég væri að fara frá
KR og í
Stjörnuna! Ég veit bara ekki
hvaðan þessar sögur koma, hef ekki einu sinni velt því fyrir
mér að fara frá KR, hvað þá talað eitthvað um það við
einhvern! Merkilegar svona sögur sem bara skjóta upp kollinum
upp úr þurru!
Annars skellti ég mér til
NYC um helgina. Hitti þar
Sigurrós, Stein, Þórunni,
Ollu, Tinnu, Dóru Maríu og Bjarneyju og við fórum öll
út að borða saman og skelltum okkur svo út á djammið á stað
sem heitir
Crobar.
Þar hittum við fyrir ýmsa furðufugla en skemmtun okkur engu
að síður ágætlega. Svo á sunnudeginum fór ég með Sigurrós og
Stein í
Kínahverfið
þar sem einhver hátíð var í gangi í tilefni kínversks nýárs
sem var í vikunni sem leið. Það var margt um manninn og
rosastuð hjá Kínverjunum. Við fundum ýmsar áhugaverðar búðir,
t.d. búð sem seldi fullt af skrítnu kínversku nammi, svo
prófuðum við kínverskar kökur sem brögðuðust ákaflega svipað
og vöfflur nema aðeins sætari. Seinni partinn hitti ég svo Þ,
O, T, DM og B á
Hard
Rock uppá
Times
Square og við fengum okkur aðeins í gogginn áður en
við héldum heim á leið. Fín helgi en það er ótrúlegt hvað
peningarnir manns hverfa þarna í NYC....keypti mér ekki neitt
nema bara mat og svona en peningarnir gjörsamlega gufa upp
þarna engu að síður
En hún Sandra var víst að klukka mig, þannig að ég ætla bara að
drífa í að svara þessum spurningum:
Fjögur störf sem ég hef unnið um
ævina:
Kvöldvinna við að ryksuga í Hagkaup í Kringlunni
Unnið við færiband í Kexsmiðjunni við að búa til snúða og kex
(klárlega ekta starf fyrir mig, sætabrauðsstelpuna

)
Gjaldkeri og bakvinnsla í Sparisjóði Hafnarfjarðar
Fótboltaþjálfari í USA
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft
á aftur og aftur:
Geri ekki mikið af því að horfa á bíómyndir aftur, en geri það samt
ef þær eru í sjónvarpinu og ég sit fyrir framan það. Dettur engin
sérstök í hug í augnablikinu....
Staðir sem ég hef búið
á:
Akureyri
Garðabær
Reykjavík
Bridgeport, CT, USA
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér
líkar:
Grey's Anatomy
LOST
Desperate Housewives
American Idol
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt
í fríum:
San Juan, Puerto Rico
Miami, Florida
Orlando, Florida
Mallorca, Spánn
Fjórar síður sem ég skoða daglega
(fyrir utan blogg):
www.yahoomail.com
www.bridgeport.edu
www.heimabanki.is
www.hotmail.com
Fernt matarkyns sem ég held
uppá:
Ristað brauð með helling af smjöri og íslenskum osti
Kjúklinga fajitas
Mömmukjúklingur

Humar a la mamma (eiginlega held ég uppá allt sem mamma eldar

)
Fjórar bækur sem ég les
oft:
Ensk-ensk orðabók með íslenskum lykilorðum
Technical Analysis of the Financial Merkets
Using Options to Buy Stocks
Strategic Management
(Tek það fram að þetta eru bækur sem ég á að lesa oft...en það
gerist ekki svo oft!!)
Fjórir staðir sem ég vildi heldur
vera á núna:
Hvar sem er með honum Hilmari mínum

Við matarborðið heima þar sem Kara heldur uppi stuðinu með söng og
dansi og Vilmar hamast við að fá Trítil (páfagaukinn) til að sitja
á öxlinni á sér en mamma tuðar í honum að koma páfagauknum útúr
eldhúsinu

Pabbi lætur sér fátt um finnast og heldur bara
áfram að borða

Að læra á brimbretti við strendur Californiu

Á jeppasafarí einhvers staðar í Afríku
Fjórir bloggarar sem ég
klukka:
Hildur
Hilmar
Fjóla
Ilmur
Jei gaman gaman, þetta er reyndar ekki svo slæmt, tekur ekki of
langan tíma
En ég þarf að fara að gera eitthvað....þvotturinn þvær sig ekki
sjálfur og bókin les sig ekki sjálf....
Adios amigos